.comment-link {margin-left:.6em;}

laugardagur, nóvember 19, 2005

prinsessan sem átti 365 kjóla

Ég er auðvitað löngu orðin hress, mamma er bara svo löt að skrifa! Ég var samt alveg svakalega mikið veik síðast, var veik í 5 daga og hitinn fór hæst í 41,3 þá stóð mömmu nú ekki á sama! Ég er búin að vera hálf slöpp núna síðan á fimmtudag, var með smá hita þá svo hitalaus á föstudag fram á kvöld fékk þá 39,1 og er svo hitalaus í dag laugardag en er dálítið lítil í mér.
Ég er svo heppin að eiga nokkrar stórar frænkur sem eru algjörir kjólapúkar. Ég er búin að fá tvær fatasendingar frá þeim núna með stuttu millibili og vitið þið bara hvað? Ég á 29 kjóla sem passa á mig núna!!! Ég gæti sem sagt verið allan febrúar í nýjum kjól á hverjum degi! Mest allt er frá Snjólaugu, Sólrúnu og Gabríelu en svo saumaði amma einn kjól og Kristín frænka hefur gefið mér nokkra... Ég hlýt bara að vera prinsessa í dulargervi!

kv, Sigrún Aðalheiður

This page is powered by Blogger. Isn't yours?