.comment-link {margin-left:.6em;}

mánudagur, apríl 24, 2006

Hætt með bleyju

já, svona er lífið, mamma og pabbi nýkomin heim af fæðingardeilinni með mig pínkulitla og ósjálfbjarga og nú er ég hætt með bleyju!

Ég er búin að vera svo dugleg, það koma sárasjaldan slys, ég er meira að segja búin að fara í skátamessu, fermingu og skírn með tilheyrandi veisluhöldum og ég pissa bara í klósettin þar sem ég er!
Mer finnst skemmtilegast að sturta niður :)

Er ekki rétt að láta það fylgja hérna að litli frændi minn sem var skírður á laugardaginn heitir Jóhann Ingi Magnússon.

kv, Sigrún Aðalheiður

fimmtudagur, apríl 13, 2006

orðin hress

Ég er orðin hress :) það er víst ekki gott að hafa svona veikindapistla of lengi efst!

Afi minn er kominn heim, ég var dálítið feimin við hann en það lagast örugglega bráðum, það getur nú verið skrýtið að sjá allt í einu einhvern sem maður hefur bara ekki séð í heilan mánuð!

Afi kom með baðliti og baðmálningu fyrir mig, ég er búin að prófa í baðinu, mér fannst það sko svakalega skemmtilegt og teiknaði krókódíla út um allt baðkar!
Ég er líka núna að æfa mig að pissa í klósett, það sem af er deginum í dag er ekki búið að koma eitt einasta slys! Ég er samt með bleyju núna því ég er sofandi úti í vagni, það væri nú ekki gott ef það kæmi slys þar! en hún fær að fjúka um leið og ég kem inn.
Ég kúkaði meira að segja í klósettið í morgun, ég var pínu lítið hrædd þegar það var alveg að fara að gerast en svo var ég yfir mig ánægð þegar það var búið og ég fékk unga límmiða til að setja á vegginn á móti klósettinu!

mamma ætlar að skella inn myndum líka í dag, og munið eftir gestabókinni.

kv, Sigrún Aðalheiður

mánudagur, apríl 03, 2006

Undur og stórmerki gerast enn...

haldið þið ekki að ég sé orðin lasin eina ferðina enn, það finnst okkur sko ekki skemmtilegt! Gubb hefur alveg fengið nýja merkingu í hugum foreldra minna þessa síðustu daga, gubb er ekki lengur tengt við brjóstagjöf eða timburmenn, nei, nei nú er gubb flóð og fossar af hálfmeltum mat sem spýtist út úr munni af svo miklum krafti að æðar springa í augunum á mér. Ég er líka með mikinn niðurgang og mamma veit ekkert hvað hún ætti að gefa mér að borða, enda skiptir það litlu máli þar sem ég hef lítið sem ekkert borðað síðan á föstudaginn, smá íspinna í gær en það kom allt upp aftur fljótlega.
Þetta byrjaði allt þannig að ég fékk eyrnabólgu og á fimmtudaginn fékk ég penicilin og mér varð svona heiftarlega illt í maganum, mamma og pabbi héldu að þetta væri meðalið og læknirinn ráðlagði þeim að hætta að gefa mér það í gær og sjá hvort að ég myndi ekki þá lagast, en ég er ekkert að lagast, reyndar er ég ekki með hita lengur en alveg hrikaleg mallaveikindi þrátt fyrir það. Svo núna er mér illt í eyrunum og með magapest.
Ég er orðin svo kraflaus af því að borða ekki neitt að ég ligg helst bara í fanginu á mömmu eða pabba á milli þess sem ég æli, kúka og fer í bað. Mamma var að spila fyrir mig á nikkuna í kvöld þegar ég var þokkalega hress en allt í einu datt ég á gólfið og mamma rauk auðvitað til og kíkti á mig og þá var ég sofnuð! Mamma spilar bara á nikku núna vegna þess að ég sat við píanóið í gær og gubbaði svo rosalega að það er ekki líft í kringum píanóið núna sökum gubbufýlu, mamma er búin að bleyta og salta og við ætlum að sjá hvort að lyktin fer ekki við það, sem betur fer slapp samt píanóið sjálft.

kv, Sigrún Aðalheiður

This page is powered by Blogger. Isn't yours?