.comment-link {margin-left:.6em;}

laugardagur, desember 10, 2005

myndir

mamma skellti inn nokkrum myndum frá síðustu tveimur mánuðum! það voru ekki settar inn neinar myndir allan nóvember! hún mamma...

en vegna einhver klúðurs eru myndirnar allar í ruglaðri röð, það verður bara að hafa það

kv, Sigrún Aðalheiður

Stór

Ég fór í mælingu í gær og er orðin 76,5 cm og 9,8 kg - flott hjá mér.

Annars er maður eitthvað svakalega klukkaður, bara tvö klukk í einu!

jæja, hér koma þá 5 staðreyndir um mig:

1. ég er orðin dálítil frekjudolla
2. ég er að læra að segja svona 3 ný orð á hverjum degi núna
3. ég er að æfa mig að pissa í kopp og finnst það rosa gaman
4. ég er dálítið matvönd
5. ég er svakalega dugleg að passa að mamma og pabbi gleymi ekki hausunum á sér einhversstaðar

og aftur:

1. mér finnst svakalega gaman að vera fín
2. ég vill ekki láta bursta efri tennurnar í mér
3. ég er ennþá bara með 4 tennur
4. ég er nammigrís
5. ég sef til 11 á morgnanna ef mamma vekur mig ekki

Að lokum klukka ég:
Birgittu, Bryndísi Heklu, Eik, Eyþór Atla og Benedikt Eystein

og svo:

Ragnheiði, Kötlu, Heiðrúnu, Freyju Dís og Ásgerði Pálu

This page is powered by Blogger. Isn't yours?