.comment-link {margin-left:.6em;}

þriðjudagur, júní 07, 2005

Ferðalagið

Ég fór í ferðalag um helgina. Mömmu og pabba fannst ég rosalega dugleg að sitja í bílnum þó svo að ég væri stundum óróleg, en það mátti nú búast við því, því þetta er löng leið! Við ætluðum að sofa í tjaldi í Hvalfirðinum tvær nætur, en við lögðum seint af stað á föstudaginn og þegar við vorum í Borgarnesi í roki og 2. stiga hita klukkan eitt um nóttina ákváðum við að fara bara alla leið í Kópavog og gista þar hjá Gurrý systur hennar Jónu ömmu. Um morguninn fórum við aðeins í sólbað á pallinum og ég skoðaði dótið hennar Gurrýjar og svo fórum við af stað í Hvalfjörðinn.
Þar var nefninlega ættarmót hjá fjölskyldunni hans Bærings langafa og þar hitti ég sko fullt fullt af frændum og frænkum. Það var rosalega gaman. Okkur reiknast til að ég hafi verið næstyngsti gesturinn á ættarmótinu, bara Eik frænka mín var yngri.
Um kvöldið ætluðum við aftur að gista í tjaldi en það var bara svo kalt að við fórum með Henry afa og Kristínu og Birni í Skorradalinn til Halla og Kollu, en Halli er bróðir hans Rúbba og þau eiga sumarbústað í Skorradal og voru einmitt þar um helgina. Við fórum til þeirra og fengum að gista, þar voru tvær litlar stelpur, Hera Rut sem er 22 mánaða og Freyja Rán sem er 2 mánaða, ég náði ekkert að spjalla við þær vegna þess að alltaf meðan ég var vakandi voru þær sofandi! Kannski spjalla ég bara við þær næst.
Við fórum svo úr Skorradalnum rétt fyrir hádegi keyrðum í samfloti með Kristínu frænku og Henry afa og langömmu og langafa í Miðtúni alla leið heim. Bæring frændi kom í okkar bíl til að hafa ofan af fyrir mér og var voða duglegur miðað við hvað ég var orðin þreytt á þessu ferðalagi. Við fórum nefnilega löngu leiðina heim, stoppuðum í Bjarkarlundi og fengum okkur að borða, fórum svo Barðaströndina og kíktum á Patró og Tálknafjörð, svo á Bíldudal og enduðum á að fara í sund í Reykjafirði, það var alveg rosalega gott að fá aðeins að hreyfa sig smá! og svo var laugin líka heit og fín.
Þegar við komum uppúr sundi, brunuðum við beint heim til Jónu ömmu og fengum okkur miðnætursnarl þar áður en við fórum heim!

Rosalega skemmtilegt ferðalag þó svo að við gistum ekki í tjaldi.

kv, Sigrún Aðalheiður

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?