.comment-link {margin-left:.6em;}

fimmtudagur, maí 11, 2006

smá fréttir af mér

Nú er sko gaman!

Það er búið að vera svo gott veður undanfarið að ég er bara alltaf úti! úti allan daginn hjá Dóru og svo bara úti í garði eða í göngutúr með mömmu þegar ég kem heim, ég fer meira að segja stundum út eftir kvöldmat þegar veðrið er mjög gott! Mér finnst skemmtilegast að vera bara úti.

Ég, mamma, Sara, Hörður og mamma þeirra fórum í sumarbústaðinn okkar á sunnudaginn, okkur fannst rosalega gaman að leika þar, það er svo mikið pláss þar, svo var líka ennþá smá snjór. Við pissuðum í koppinn úti á palli og mömmurnar skvettu í ána, það fannst okkur gaman.

Að lokum koma svo tvær skemmtilegar pissusögur af mér...
Einu sinni var ég heima hjá ömmu og afa með mömmu og pabba og Kristín frænka var líka og Bæring frændi, þau voru öll að borða en ég var sko löööööngu búin svo ég var bara farin að leika mér. Þau voru greinilega eitthvað lítið að fylgjast með mér, hvað þá hlusta á mig, svo í eitt skiptið sem þau litu á mig þá sat ég á koppnum og sagði: veeei eins og ég segi alltaf þegar ég er búin að pissa, nema ég var ennþá í buxunum.... og búin að pissa í gegnum þær ofan í koppinn!

Annað skipti var ég niðri í kjallara með pabba, við vorum að smíða hurð og skrúfa voða mikið sem mér finnst mjög gaman, svo kveikti pabbi á vélsöginni og heyrði í gegnum hávaðann öskur í mér og slökkti, þá leit ég niður á mig og sagði: gúgga. Ég var sem sagt búin að pissa á mig af hræðslu!

hver veit nema það komi nýjar myndir bráðlega...

kv, Sigrún Aðalheiður

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?