.comment-link {margin-left:.6em;}

fimmtudagur, september 07, 2006

Leikskólastelpa

Halló halló

Ótrúlega er tíminn fljótur að líða, bara strax aftur kominn næstum mánuður!

Við erum búin að fara að Horni aftur og það var ekki leiðinlegra en í fyrra skiptið, við sáum hvali og seli og rebbi kom að þakka fyrir grautinn. Mamma ætlar að reyna að setja inn myndir frá ferðinni fljótlega.

Ég er byrjuð í leikskóla, hann heitir Sólborg, deildin mín heitir Dokka og hópurinn minn heitir Snúllurnar. Mér finnst mjög gaman í leikskólanum, ég vil samt ekki fara þangað á morgnanna en ég vil heldur ekki koma heim seinnipartinn. Ég er dugleg að borða þar og leggja mig inni og allt.

Nú er alveg að koma að afmæli og það er orðinn mikill spenningur í Aðalstrætinu, ég hlakka svo til að halda veislu.

kv, Sigrún Aðalheiður

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?