.comment-link {margin-left:.6em;}

sunnudagur, apríl 22, 2007

halló

halló, við erum ennþá hérna. Mamma mín er búin að vera eitthvað löt við að skrifa hjá mér. Ég hef auðvitað stækkað helling og er orðin svakalega dugleg að gera allt sjálf. Mömmu og pabba finnst ég bara hafa stækkað alveg ótrúlega á nokkrum mánuðum núna. Í haust var ég lítið barn en núna er ég bara orðin fullorðin!

Gestabókin okkar er í lamasessi, við þurfum að sjá hvort við getum ekki gert eitthvað í því við tækifæri.

Ég er alltaf í leikskólanum á virkum dögum, núna er ég farin að vera til klukkan þrjú á daginn. Mér finnst æðislega gaman í leikskólanum og vill alltaf fara þangað á morgnanna.

kv, Sigrún Aðalheiður

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?